Lærðu að fæða
Ég undirbý mig.
Fæðingarundirbúningur og fæðingarmarkþjálfun fyrir þig og fæðingarfélaga þinn.
Það er gulls ígildi að undirbúa sig fyrir sængurleguna. Hugsa útí hvort þér finnist þú vera vel upplýst og örugg, hvernig sængurlegu þig dreymir um og hvað þurfi til svo að svo megi verða og hvernig stuðning þú komir til með að hafa þörf fyrir sem nýbökuð móðir.
Fyrstu vikurnar eftir fæðingu nýs barns geta verið fullar af alls konar áskorunum og getur rúmað allan tilfinningaskalann. Ef einhvern tíma er þörf fyrir að læra að biðja um og þiggja aðstoð, þá er það í sængurlegunni að mínu mati. Þessi tími er tími þar sem þú upplifir gjarnan meiri gleði, frið og alsælu en þú getur auðveldlega upplifað meiri vanmátt, einmanaleika og depurð og allar þessar tilfinningar eru eðlilegar á þessum tíma en svo mikilvægt að fá stuðning svo þær megi falla í ljúfan farveg.
Sem sængurlegudoula býð ég upp á ýmis konar þjónustu sem er sérsniðin að þínum einstöku þörfum og óskum. Þú getur ráðið mig til þín til að koma og sinna þínum þörfum og veita þér uppbyggjandi aðstoð með nýburann og ýmislegt er tengist því að næra líkama þinn og andlega líðan sem og barnið þitt og læra á nýtt lífsmynstur.
Heppilegt er að vera búinn að ráða hjálpina áður en barnið kemur í heiminn en velkomið er að hafa samband hvenær sem þörfin kemur upp. Eins og fyrr segir er þjónustan sniðin að þínum þörfum og hægt að velja úr og búa til mismunandi leiðir.
Stuðningurinn miðar að því að skapa rými fyrir móðurina til að aðlagast og takast á við nýjar aðstæður og miðar alltaf að því að vera uppbyggjandi, styðjandi og nærandi fyrir móður og síðast en ekki síst samband móður og barns/foreldra og barns.
Bókaðu samtal og fáðu upplýsingar um valmöguleika í þjónustu.
Með því að ráða til þín sængurlegudoulu tekur þú stórt skref í átt að mjúkri lendingu eftir fæðingu. Nýir foreldrar og þá sérstaklega mæður þurfa allan þann stuðning og umhyggju sem hægt er að fá.
Þegar við höfum lokið samvinnu okkar munt þú/þið búa yfir fleiri úrræðum varðandi það að huga að sjálfri/um þér, ykkur og nýfædda barninu þínu/ykkar.
„Að þiggja umhyggju og stuðning í sængurlegu, er góð fjárfesting í móðurhlutverki þínu og lífinu framundan“.
Dagný Erla Vilbergsdóttir – sængurlegudoula
fæðingarmarkþjálfun og douluþjónusta í fæðingu og sængurlegu
Having Dagný as our doula was the best investment we could do for our second pregnancy. The birth of our first child was all discovery. A lot of stress due to some uncertainties didn't make it the best experience I could have wished for. A lot of interventions, a lot of medicines and the recovery after an emergency C-section was long. So for our second child I wanted to have some support before, during and after. I wanted to feel good during my pregnancy, embrace the birth, and enjoy and recover one day at a time. During the pregnancy support sessions, I've been able to understand better how hormones work during the birth and what trigger them. We learnt to use different tools: massages, rebozo, breathing techniques. Dagný helped to identify possible sources of stress during pregnancy and how to cure them. We talked about our birth wishes and how to manifest them. My husband found his place in the whole process. During the labor, we wanted to have Dagný with us, as she was the one that knew the best what we were wishing for. And she could be our advocate while it was allowing us, my husband and I to experience the birth together without distraction. Breathing techniques allowed me to find a physical and emotional endurance. I was able to give birth naturally and without medication or intervention. Owning my birth this time, really empowered me and healed what I perceived as a not so good even traumatic experience during my first pregnancy. I felt this birth made it up for both of them as it was like I pictured and beyond. My wishes were respected and not discussed. I stood up for what I wanted, I was confident and most of all I was surrounded and supported by my husband with his words, his arms and his love. Having Dagný with us made this possible, as we could focus on experiencing the birth together, as a couple, building up our own bubble. The postpartum visits were also crucial. Those first days after the birth, we are so fragile. Her visits were totally complimentary to the midwife visits. Dagný was genuinely available to help me in my recovery. She cooked delicious meals for me, massaged me, she was a good hear, and we talked a lot. She also helped me with homeopathy to recover faster on different levels. We could not thank her enough.
Ég undirbý mig.
Fæðingarundirbúningur og fæðingarmarkþjálfun fyrir þig og fæðingarfélaga þinn.
Fæðingarmarkþjálfun er eins konar einkaþjálfun fyrir eitt stærsta verkefni lífsins.
Ég vil hafa stuðning með mér.
Persónulegur undirbúningur og samfelld nærvera fyrir, í og eftir fæðingu.
Ég vil finna mig og mína leið áfram.
Lífsþjálfun eftir fæðingu fyrir vellíðan, tengsl, sjálfsmynd, drauma og framtíð.
Bókaðu frítt 20–25 mínútna kynningarsamtal og við finnum saman þína leið.