Fara beint í efni

Um mig

Dagný Erla, fæðingar- og lífsþjálfi, brosandi

Hæ, ég heiti Dagný Erla og er fæðingar- og lífsþjálfi. 

Ég hef lengi haft einlægan áhuga á fæðingum, móðurhlutverkinu og þeirri umbreytingu sem verður þegar barn kemur í heiminn — ekki aðeins hjá barninu, heldur líka hjá móðurinni.

Æskudraumurinn minn var að verða ljósmóðir en lífið leiddi mig fyrst að kennslu og náms- og starfsráðgjöf. Síðar eignaðist ég sjálf fimm börn og á þeirri vegferð kviknaði áhuginn á fæðingarheiminum aftur af fullum krafti.

Ég fann á eigin skinni hversu miklu máli góður andlegur og líkamlegur undirbúningur getur skipt fyrir upplifun okkar af fæðingu — og hvernig sú upplifun getur fylgt okkur inn í móðurhlutverkið og lífið sem tekur við.

Ég hóf doulunám árið 2015 og hef síðan bætt við mig námi og þekkingu á sviði fæðingarundirbúnings, hypnobirthing, markþjálfunar og lífsþjálfunar. Ég er einnig menntuð sængurlegudoula og sorgardoula.

Í gegnum árin hef ég þróað mína eigin nálgun þar sem ég sameina fræðslu, fæðingarfærni, hugarþjálfun, markþjálfun og hlýjan einstaklingsmiðaðan stuðning.

Markmið mitt er ekki að lofa hinni „fullkomnu fæðingu“. Það er að hjálpa þér að mæta þinni fæðingu með þekkingu, öryggi, traust á eigin líkama og verkfæri til að takast á við það sem kemur.

Samvinna mín með mæðrunum endar ekki endilega við fæðinguna.

Ég vil líka styðja konur þegar þær stíga inn í móðurhlutverkið, finna sig á ný og fara að móta lífið sem þær vilja skapa fyrir sig og fjölskylduna sína.

Ég elska að vera til staðar fyrir fólk — hvort sem það er að finna öryggi sitt fyrir fæðingu, fóta sig í móðurhlutverkinu eða finna sína leið áfram í lífinu.

Sjálf er ég fyrst og fremst mikil fjölskyldumanneskja. Ég á fimm börn, tvö eldri stjúpbörn og stjúpdótturdóttur og dýrmætustu stundirnar mínar eru þær sem ég fæ að eiga með stóru fjölskyldunni minni. 

Tölum saman 

Bókaðu frítt 25 mínútna kynningarsamtal og við finnum saman hvaða stuðningur hentar þér.