Fara beint í efni

Þjónusta

Lærðu að fæða

Fæðingarundirbúningur og fæðingarmarkþjálfun

Persónulegur fæðingarundirbúningur og fæðingarmarkþjálfun fyrir þig og fæðingarfélaga þinn.

Fæðing er ekki bara eitthvað sem þú bíður eftir. Hún er eitthvað sem þú undirbýrð þig fyrir að mæta.

Lærðu að fæða er heildrænn og einstaklingsmiðaður fæðingarundirbúningur þar sem fræðsla, fæðingarmarkþjálfun, hugarþjálfun og hagnýt þjálfun vinna saman að einu markmiði: að þú og fæðingarfélagi þinn mætið fæðingunni með þekkingu, öryggi og trausti á eigin getu.

Þetta snýst ekki um að læra eina „rétta“ leið til að fæða eða að geta stjórnað því hvernig fæðingin verður.

Þetta snýst um að undirbúa líkama og huga, skilja fæðingarferlið og þjálfa færni sem hjálpar þér að vinna með fæðingunni og mæta því sem kemur af meiri ró, yfirvegun og sveigjanleika.

Líkaminn kann að fæða — en við getum lært að styðja hann

Í Lærðu að fæða færðu skilning á því sem gerist í líkamanum í fæðingu og hvernig hugarástand, öryggi, umhverfi, öndun, hreyfing, slökun og stuðningur geta haft áhrif á upplifun þína.

Við æfum verkfæri sem þú getur gripið til þegar fæðingin hefst — meðal annars öndun, slökun, líkamsbeitingu, hugarþjálfun og leiðir til að mæta kröftum fæðingarinnar án þess að óttinn taki stjórnina.

Markmiðið er að verkfærin verði ekki bara eitthvað sem þú hefur lesið um, heldur eitthvað sem þú hefur æft og þekkir þegar þú þarft á þeim að halda og virka eins og skilyrt og sjálfkrafa viðbragð við fæðingarkröftunum en ekki eitthvað sem þú þarft að nota rökhugsun við.

Fæðingarfélaginn lærir líka að fæða — á sinn hátt

Fæðingarfélaginn er ekki bara áhorfandi. Hann eða hún getur orðið mikilvægur hluti af því öryggi sem þú þarft á að halda.

Þess vegna undirbúið þið ykkur saman. Fæðingarfélaginn lærir að skilja ferlið, lesa þarfir þínar, styðja við slökun og öryggi og nota raunhæf verkfæri til að hjálpa þér í gegnum mismunandi stig fæðingarinnar.

Þannig getið þið bæði gengið inn í fæðinguna með meiri tilhlökkun og öryggi — sem teymi.

En af hverju fæðingarmarkþjálfun?

Vegna þess að fæðingarundirbúningur snýst ekki eingöngu um að vita hvað útvíkkun, hríðir og hormón eru.

Hann snýst líka um þig.

Hvernig sérð þú fæðinguna fyrir þér?Hvað skiptir þig mestu máli?Hvað veitir þér öryggi?Hvað óttastu?Hvernig bregst þú við þegar þú finnur að þú missir stjórn?Og hvað þarftu til að geta treyst líkamanum og sjálfri þér?

Í fæðingarmarkþjálfuninni skoðum við þínar óskir, væntingar, styrkleika og áskoranir og byggjum undirbúninginn út frá þér, ekki einhverri fyrirfram ákveðinni uppskrift.

Þú ert ekki að undirbúa þig fyrir „fullkomna fæðingu“.Þú ert að undirbúa þig til að mæta þinni fæðingu af yfirvegun.Með þekkingu.Með verkfæri.Með traust.Með fæðingarfélaga sem veit hvernig hann getur staðið með þér.Og með meiri getu til að aðlagast ef fæðingin tekur aðra stefnu en þú hafðir séð fyrir þér.

Þetta er meira en fæðingarnámskeið

Lærðu að fæða er eins konar einkaþjálfun fyrir eitt stærsta verkefni lífsins.

Við sameinum fræðslu og þjálfun við samtal og markþjálfun þannig að undirbúningurinn miðist við þig, þína sögu, þínar þarfir og þá fæðingu sem þú ert að fara að mæta.

Markmiðið er að þegar fæðingin hefst hugsir þú ekki:

„Ég vona að ég ráði við þetta.“

Heldur finnir þú:

„Ég hef undirbúið mig. Ég veit hvað ég get gert. Ég treysti mér til að mæta því sem kemur og ég er ekki ein“.

Lærðu að fæða er heildrænn fæðingarundirbúningur fyrir þig og fæðingarfélaga þinn — fyrir aukið öryggi, traust og trú á eigin getu.

Hvað segja foreldrar sem ég hef stutt?

  • Sandra og Kristinn

    Fæðingarmarkþjálfun og douluþjónusta

    Við gætum ekki mælt meira með elsku Dagný doulunni okkar, sem fylgdi okkur í gegnum allt okkar ferli. Hennar þjálfun, stuðningur og undirbúningur skilaði sér svo sannarlega í magnaðri heimafæðingu í Björkinni og erum við svo innilega þakklát fyrir hana.

  • Ásgerður Elín og Grímur

    fæðingarfræðsla og þjálfun

    Okkur langar að gefa Dagnýju bestu meðmæli í heimi, þetta var frábært námskeið og að okkar mati það eina sem foreldrar þurfa að taka þar sem að hún fer svo vel yfir allt. Dagný hefur líka svo góða nærveru og lætur manni líða vel. Við höfum svo sannarlega ekkert slæmt að segja um námskeiðið því það gagnaðist okkur svo vel í fæðingarferlinu öllu, t.a.m. hvernig Grímur gat hjálpað mér sem mest í fæðingunni og hvað ég gat gert sjálf til að verkjastilla mig. Ég átti yndislega fæðingarupplifun og ég tel að það sem Dagný kenndi mér varðandi öndun og stellingar og annað hafi átt stóran þátt í því. Þúsund sinnum takk fyrir okkur.

  • Anna Kristín og Guðjón

    fæðingarfræðsla og þjálfun

    Námskeiðið var eins og himnasending fyrir okkur þar sem við vorum að leita að einhverjum sem gæti kennt okkur foreldrunum fleiri bjargráð og ekki síst veitt okkur innblástur og fræðslu fyrir fæðingu númer tvö. Því þótt við höfum farið í gegnum fæðingu áður vorum við orðin ryðguð og langaði að gera það sem við gætum til að auka líkurnar á enn betri upplifun í seinna skiptið. Námskeiðið var mjög fræðandi og praktískt sem setti okkur foreldrana alveg í gírinn fyrir fæðinguna. Við fengum skýr heimaverkefni sem hafa gert okkur öruggari í undirbúningnum. Róleg og yfirveguð nærvera Dagnýjar var auka plús sem ég (mamman) er mjög þakklát fyrir vegna þess að það skyldi eftir þessa dásamlegu „þetta verður allt í lagi“ tilfinningu. Maður fer út af námskeiðinu með meiri skilning á ferlinu og mikilvægi hormónanna og færnina til að ýta undir betri fæðingarupplifun. Ég mæli eindregið með námskeiðinu fyrir verðandi foreldra sem langar að öðlast meira sjálfstraust fyrir fæðingu, hlakka til hennar. Takk fyrir okkur!

    „Ég get fullyrt það að námskeiðið læknaði mig af þeim mikla kvíða sem ég hafði fyrir fæðingunni.“

    Eftir fæðinguna: „Allt sem ég lærði nýttist og ég fékk að upplifa algjöra kraftaverkafæðingu. Við erum í skýjunum með þetta allt.“

Finndu þann stuðning sem hentar þér

  • Douluþjónusta

    Ég vil hafa stuðning með mér.

    Persónulegur undirbúningur og samfelld nærvera fyrir, í og eftir fæðingu.

  • Nýtt upphaf

    Ég vil finna mig og mína leið áfram.

    Lífsþjálfun eftir fæðingu fyrir vellíðan, tengsl, sjálfsmynd, drauma og framtíð.

Tölum saman 

Bókaðu frítt 25 mínútna kynningarsamtal og við finnum saman hvaða stuðningur hentar þér.