Fara beint í efni

Þjónusta

Douluþjónusta

Samfelldur stuðningur fyrir þig og fæðingarfélaga þinn — fyrir, í og eftir fæðingu.

Að hafa doulu með sér í fæðingarferðalaginu þýðir að hafa einhvern sem þú þekkir og treystir með þér við hlið, manneskju sem þekkir þig og þínar óskir og þarfir, hefur reynslu af fæðingum og hefur undirbúið sig með þér fyrir það sem fram undan er.

Ég styð þig á meðgöngunni, undirbý þig og fæðingarfélaga þinn fyrir fæðinguna og er síðan til staðar með ykkur þegar stóra stundin rennur upp.

Markmiðið er að þú upplifir öryggi, nærveru og stuðning, getir tekið upplýstar ákvarðanir og mætt fæðingunni með traust á sjálfri þér og þeim sem standa með þér.

Fæðingarfélaginn þinn fær líka stuðning — svo hann þurfi ekki að vita allt eða bera ábyrgðina einn, heldur geti verið makinn þinn, öryggið þitt og virkur þátttakandi í fæðingu barnsins ykkar.

Meira en stuðningur í fæðingunni

Douluþjónustan mín hefst löngu áður en fæðingin byrjar.

Lærðu að fæða – fæðingarundirbúningur og fæðingarmarkþjálfun er hluti af þjónustunni og því fáið þið persónulegan undirbúning sem miðast við ykkar þarfir, óskir og aðstæður.

Við skoðum hvað skiptir ykkur máli í fæðingunni, hvað veitir þér öryggi og hvort eitthvað valdi þér áhyggjum eða ótta. Þið lærið um fæðingarferlið og æfið verkfæri á borð við fæðingaröndun, slökun, hreyfingu, snertingu og aðrar leiðir sem geta hjálpað þér að vinna með líkamanum og kröftum fæðingarinnar.

Við getum einnig unnið með fæðingaróskir, sjónsköpun og djúpslökun og undirbúið hvernig þið viljið mæta ólíkum aðstæðum ef fæðingin þróast á annan hátt en þið höfðuð séð fyrir ykkur.

Þegar komið er að fæðingunni

Þegar þið óskið eftir mér kem ég til ykkar og er með ykkur í gegnum fæðingarferlið þar til barnið er komið í heiminn og ró er komin á.

Hlutverk mitt er ekki að taka sæti fæðingarfélagans heldur að styrkja ykkur bæði.

Ég get hjálpað þér að finna ró, minna á verkfærin sem við höfum æft, aðstoðað með líkamsstöður, fæðingaröndun, slökun og bjargráð og verið stöðug nærvera þegar mikið gengur á.

Um leið styð ég fæðingarfélagann þinn svo hann geti verið nálægt þér, tekið virkan þátt og fundið öryggi í sínu hlutverki.

Þið eigið fæðinguna. Ég er þarna til að styðja ykkur í gegnum hana.

Eftir að barnið er fætt

Stuðningurinn endar ekki um leið og barnið kemur í heiminn.

Ég hitti ykkur aftur eftir fæðinguna þar sem við förum yfir upplifunina, gefum henni rými og skoðum hvernig ykkur líður þegar þið takið fyrstu skrefin inn í nýtt hlutverk.

Ef þú óskar eftir meiri stuðningi getum við síðan haldið áfram með sængurlegustuðning eða Nýtt upphaf – lífsþjálfun eftir fæðingu.

Þannig getur stuðningurinn fylgt þér áfram þegar fæðingarferðalaginu lýkur og nýtt ferðalag hefst. 

Douluþjónustan inniheldur

  • Kynningarhitting án skuldbindingar.
  • 4–5 persónulega undirbúnings- og markþjálfunartíma á meðgöngu fyrir þig og fæðingarfélaga þinn.
  • Lærðu að fæða – fræðslu, fæðingarmarkþjálfun og verklega þjálfun.
  • Æfingar og verkfæri fyrir fæðinguna, svo sem fæðingaröndun, djúpslökun, sjónsköpun og önnur bjargráð.
  • Hljóð- og myndefni, djúpslakanir og annað stuðningsefni til að nota á meðgöngunni.
  • Aðgengi að mér og stuðning í gegnum ferlið.
  • Bakvakt í kringum áætlaðan fæðingardag.
  • Samfellda viðveru mína í fæðingunni frá því þið óskið eftir mér þar til barnið er fætt og allt komið í góðan farveg.
  • 1–2 heimsóknir eftir fæðingu til að ræða upplifunina og styðja ykkur í fyrstu skrefunum.

Hvað segja foreldrar sem ég hef stutt?

  • „Besta fjárfesting sem við gátum gert á okkar annarri meðgöngu.“

    Anaïs og Georg
  • „Dagný er ekki bara fróð, hún hefur yndislega nærveru og gefur mikið af sjálfri sér.“

    Marie Huby
  • „Dagný hefur hjálpað pabbanum mikið að taka virkan þátt í fæðingunni.“

    Marie Huby

Finndu þann stuðning sem hentar þér

  • Lærðu að fæða

    Ég undirbý mig.

    Fæðingarundirbúningur og fæðingarmarkþjálfun fyrir þig og fæðingarfélaga þinn.

  • Nýtt upphaf

    Ég vil finna mig og mína leið áfram.

    Lífsþjálfun eftir fæðingu fyrir vellíðan, tengsl, sjálfsmynd, drauma og framtíð.

Þið þurfið ekki að mæta fæðingunni ein.

Mitt hlutverk er að skapa öryggi í kringum ykkur, styðja ykkur og hjálpa ykkur að finna ykkar eigin styrk — svo þið getið mætt fæðingu barnsins saman.