Persónuverndarstefna
Móðurafli er annt um persónuvernd þína. Hér kemur fram hvaða upplýsingum er safnað, í hvaða tilgangi, hversu lengi þær eru geymdar og hvaða réttindi þú átt.
Stefnan byggir á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerð Evrópusambandsins (GDPR).
Ábyrgðaraðili
Móðurafl, rekið af Dagnýju Erlu, ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga sem lýst er hér.
Lífsgæðasetur St. Jó, Suðurgata 41, 220 HafnarfjörðurNetfang: dagnyerla@modurafl.isSími: 698 2977
Hvaða upplýsingum er safnað
Þegar þú sendir skilaboð í gegnum formið á vefnum fáum við:
- nafn og netfang,
- símanúmer, ef þú kýst að gefa það upp,
- áætlaðan fæðingardag, ef þú kýst að gefa hann upp,
- þau skilaboð sem þú skrifar.
Upplýsingar um meðgöngu teljast til heilsufarsupplýsinga, sem njóta sérstakrar verndar. Þær eru aðeins unnar með skýru samþykki þínu og þú ræður sjálf hvort þú gefur þær upp.
Ef þú hefur samband með tölvupósti eða í síma fáum við þær upplýsingar sem þú gefur þar upp. Þegar þú nýtir þjónustu Móðurafls getur einnig orðið til vinnsla á upplýsingum sem skipta máli fyrir þjónustuna, til dæmis um meðgöngu, fæðingaróskir og líðan. Þær eru einungis notaðar til að veita þér þjónustuna.
Tilgangur og heimild
- Að svara fyrirspurnum og bóka samtöl — á grundvelli samþykkis þíns og ráðstafana að beiðni þinni áður en samningur er gerður.
- Að veita þjónustu sem þú hefur keypt — á grundvelli samnings og, hvað heilsufarsupplýsingar varðar, skýrs samþykkis þíns.
- Að uppfylla lagaskyldur, til dæmis um bókhald — á grundvelli lagaskyldu.
Upplýsingarnar eru aldrei seldar, notaðar í markaðssetningu án samþykkis eða afhentar öðrum nema eins og lýst er hér að neðan.
Varðveislutími
- Skilaboðum úr vefformi og tölvupósti er eytt þegar erindinu er lokið, og ekki síðar en 12 mánuðum eftir síðustu samskipti, nema þú hafir keypt þjónustu.
- Upplýsingar sem tengjast veittri þjónustu eru geymdar á meðan þjónustan stendur yfir og í hæfilegan tíma eftir það, en er síðan eytt.
- Bókhaldsgögn, svo sem reikningar, eru geymd í sjö ár eins og lög nr. 145/1994 um bókhald gera kröfu um.
Vinnsluaðilar
Vefurinn er hýstur hjá Netlify, Inc., sem einnig tekur við skilaboðum úr vefforminu og sendir þau áfram í tölvupósthólf Móðurafls. Netlify er vinnsluaðili og vinnur upplýsingarnar eingöngu samkvæmt fyrirmælum Móðurafls.
Netlify er með aðsetur í Bandaríkjunum. Flutningur upplýsinga þangað byggir á viðeigandi verndarráðstöfunum samkvæmt persónuverndarlögum, svo sem stöðluðum samningsskilmálum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Eins og flestir vefþjónar skráir Netlify tæknilegar upplýsingar um heimsóknir, svo sem IP-tölu og tegund vafra, í stuttan tíma til að tryggja öryggi og rekstur vefsins.
Vafrakökur og vefmælingar
Vefurinn notar hvorki vafrakökur né vefmælingar og engum upplýsingum um heimsókn þína er deilt með auglýsinga- eða samfélagsmiðlafyrirtækjum. Letur vefsins er hýst á vefnum sjálfum en ekki sótt til þriðja aðila.
Tenglar á Facebook og Instagram leiða á vefi þeirra fyrirtækja, sem hafa sínar eigin persónuverndarstefnur.
Réttindi þín
Þú átt rétt á:
- að fá að vita hvaða upplýsingar um þig eru unnar og fá afrit af þeim,
- að fá rangar upplýsingar leiðréttar,
- að fá upplýsingum eytt,
- að takmarka vinnslu eða andmæla henni,
- að fá upplýsingar afhentar á tölvulesanlegu formi,
- að draga samþykki þitt til baka hvenær sem er. Það hefur ekki áhrif á lögmæti vinnslu fram að því.
Sendu beiðni á dagnyerla@modurafl.is og henni verður svarað innan mánaðar.
Öryggi
Vefurinn er eingöngu aðgengilegur um dulkóðaða tengingu (HTTPS). Aðgangur að upplýsingum er takmarkaður við Móðurafl og vinnsluaðila sem þurfa hann til að veita þjónustuna.
Kvartanir
Ef þú telur að vinnsla persónuupplýsinga þinna brjóti gegn lögum getur þú sent kvörtun til Persónuverndar, Rauðarárstíg 10, 105 Reykjavík, www.personuvernd.is. Við hvetjum þig þó til að hafa fyrst samband við okkur svo við getum reynt að leysa málið.
Breytingar
Stefnan getur tekið breytingum, til dæmis ef nýrri þjónustu er bætt við vefinn. Nýjasta útgáfa hennar er alltaf birt á þessari síðu.
Síðast uppfært 28. september 2026
